12 nóvember 2006

Á lífi.................

Ég er ekki dauð, ef þið hafið haldið það. Hef bara ekki nennt að setjast við þessa bíp... tölvu og blogga. Sit nógu mikið fyrir framan tölvuna og vinn og nenni þessu varla í frítímanum.

Svo er nú heilsufarið þessa dagana ekki upp á marga fiska.

Ungfrúin læknaðist af hlaupabólunni, foreldrunum til mikillar gleði, nú er þetta afstaðið. Fékk reyndar smákast þegar mamma mundi ekki hvort ég hefði fengið þessa blessuðu hlaupabólu. Hún tók sér góðan tíma í að hugsa um þetta og á meðan kvaldist ég: skyldi ég fá þetta núna og verða fárveik. Ekki að nenna þessu núna. En sem betur fer, fékk þetta sem barn...................

Saumaklúbbarnir komnir á fullt skrið aftur og mikið er ég nú farin að hlakka til þess næsta: "koníaksstofan" í Höskuldsstaðafjósinu. Og svo er það hangikjötið á Balaskarði, ekki svíkur það. Talandi um hangikjöt: þá ætlar minn skemmtilegi bróðir ekki að reykja þetta árið og ætlar alveg að eyðileggja þetta allt fyrir manni. Verð að redda þessu á annan máta.

Doddi er næstum fluttur að heiman um helgar: eyðir þeim í að lagfæra hjá Svenna bró: mála, parketleggja, tengja eldavél, rífa innréttingar og fleira og fleira. Gott væri ef hann færi nú að fá þessa framkvæmdagleði heima hjá sér??? Hvenær skyldi þvottahúsið og stofan koma????

Mikið að gera næstu vikuna, foreldraviðtöl á morgun og brjáluð veðurspá, líst ekkert á þetta. Veðrið er síðan sérkapítuli út af fyrir sig. Einn daginn er rok, næsta gott veður, svo rok, svo gott, svo rok og hríð, svo gott osfrv. Mikið væri nú gott ef eitthvert jafnvægi kæmist á þetta veður.

Að lokum verð ég að óska systur minni til hamingju með að vera búin að fá pappírana, loksins orðin "single" . Hún óskaði reyndar eftir blómum eða álíka en það er svo skrambi dýrt að senda á milli landa, ekki að leggja í það.

Over and out

1 ummæli:

Heiðagella sagði...

Já takk takk, it fíls gúdd.... en ég sagðist líka taka við beinhörðum...... hihihihi

En þetta með framkvæmdagleði húsbóndans á öðrum heimilum.. þú verður bara að hætta að fóðr'ann þar til þvottahús og allt það er komið í stand .... engar framkvæmdir = engar jólasmákökur...

hilsen pilsen frá Baunabúum....