Annatími haustsins að skella á og við Ásgeir ekki til mikilla stórræða í réttum eða annars staðar. Ætla þó að kíkja í Tungurétt á sunnudag, ef ekki rignir mikið og jafnvel í Skarðarétt á laugardag. Göngur eru á laugardaginn og því brjálað að gera í sveitinni.
Og ekki má gleyma því að heimasætan verður 7 ára á sunnudaginn og ætlar að hafa fjölskylduafmæli seinnipartinn. Svo verður partý fyrir krakkana í skólanum á mánudaginn. Þannig að nú er að bretta upp ermar, sletta í nokkrar hnallþórur og hita pönnukökupönnuna og skvera fram eins og tveimur veislum. Þetta er mikið mál hjá henni hvernig kaka á að vera og ég hef ekki fengið endanlega útgáfu ennþá.
Það er ósköp ljúft að vera í fæðingarorlofi. Við Ásgeir höfum það gott á daginn, keyrum Elínu í skólann á morgnana og höfuð það svo kósí eftir það, leggjum okkur stundum eða dundum okkur eitthvað fram yfir hádegi en þá þarf að sækja Elínu. Þetta er smáviðbrigði, að vera ekki í vinnunni á fullu, en satt að segja sakna ég þess ekki neitt, þvert á móti, er guðslifandi fegin að fá smá "frí". Ljótt að segja þetta en var orðin nokkuð þreytt eftir síðasta vetur.
Fór í afmæli hjá Svenna bróðir á laugardaginn, hann varð 30 ára 31.ágúst. Svaka matarveisla og fínheit. Fórum reyndar heim áður en "allt varð vitlaust" og partíið bara rétt að komast af stað. Við systur erum svo miklir húmoristar eða þannig: við ákváðum að velja okkur mágkonu í þetta skiptið og gáfum honum uppblásna dúkku, hana Dollý. Sú dama vakti mikla lukku í afmælinu og margir vildu fara með henni á djammið um kvöldið. Veit ekki alveg hvernig það endaði. Svenna þótti þetta ekkert rosalega fyndið hjá okkur.................
Lítið annað að gerast hérna þessa dagana.
06 september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Mér fannst Dollý ógó fyndin.....
Veistu ég er í sama pakkanum og þú. Finnst bara æði að vera í "fríi" frá skólanum .. og einmitt hálf skammast mín að segja það en það er alveg nýtt fyrir mig að vera svona heima dag eftir dag .. en ég er alveg að elska það og á örugglega eftir að finnast sssvvvooo erfitt að fara að vinna frá Sóleyju Sif
Skrifa ummæli