Sit við tölvuna og nýt þess.................... hef ekkert rosalega mikinn tíma til þess svona á hverjum degi. Ásgeir sér nefnilega um að halda móður sinni very bissý með því að sofa ekki of mikið á hverjum degi og vilja láta stjana við sig oþh.
Sosem lítið að gerast í sveitinni, búið að sóna og velja lífgimbrar og verið að skoða ærnar, hverjar séu ætar og hverjar ekki........ hakkvinna framundan.
Gengur vel í ungbarnasundi, erum búin með 4 tíma af 8, förum í dag og vonandi gengur það vel. Annars var Ásgeir svo duglegur síðast, held hann hafi kafað amk 7 sinnum og við erum farin að senda hann á milli í kafi. Honum finnst þetta rosasport. Og svo græðir auðvitað Elín Ósk sundferð í hvert skipti og það er nú ekki leiðinlegt fyrir vatnaköttinn.
Svo er saumaklúbbur hér á miðvikudag og ætli ég skelli ekki sosem eins og nokkrar tertur og rétti og prófi eitthvað nýtt. Hef reyndar bakað mikið undanfarið, 2 risarjómatertur (40-50 manna) og 3 risamarensa (40 manna) fyrir kvenfélagið, þannig að ég er ekki alveg í bakstursstuði, bíð eftir að andinn komi yfir mig.
Jæja, litli gaukur vaknaður og það nýjasta er að frussa, best að fara og ná í hann áður en hann frussar út allt rúmið. Og horfa svo á glæstar, er að verða nett spennandi núna.
22 október 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Takk fyrir síðast :) Ekkert smá duglegur hann Ásgeir!!! Næst ætlum við að leyfa Hallbjörgu að koma líka og ég er að innprenta í hana að vera extra stillt .. hehe. Sjáumst eftir viku!!
gvuð minn góður, horfirðu á glæstar... Sendu mér svona eins og eitt lambalæri, fyrst þú ert að fara að úrbeina..
kv. heiðagella
Skrifa ummæli