Já, líður að jólum og rétt mánuður þangað til þau bresta á. Hef stundum verið að tuða yfir jólaauglýsingunum, að þær byrji svolítið snemma. Þetta árið eru verslanir auðvitað ekki að klikka á því að auglýsa jólin í okt/nóv.
Maður tekur nú ekki alveg þátt í þessu kaupkapphlaupi.
EN er samt byrjuð að baka, smelltum í piparkökur á sunnudaginn var og mikið var Elín glöð með að fá að skreyta þær...... þarf ekki mikið til að gleðja barnið.
Svo er föndurdagur í skólanum á laugardaginn og ég er að fara á fund í kvöld út af því, er með í að undirbúa þetta allt saman, er nefnilega bekkjarfulltrúi í 2.bekk.
OG ég er búin að kaupa helling af jólagjöfum, ætla sko ekki að vera með þetta allt á síðustu stundu eins og t.d. í fyrra þegar orkuleysið var alveg að drepa mig, óléttan sko....... Búin að kaupa jólakortin en á eftir að láta framkalla myndir í þau. Ákvað að styrkja Tómas bróðir og kaupa kort af honum og 10. bekk á Króknum.
Sundnámskeiðið afstaðið og litli prinsinn stóð sig eins og hetja, enda ekki við öðru að búast. Bíð nú bara eftir myndunum frá henni Berglindi. Við verðum svo að vera dugleg að fara í sund með Ásgeir, svo hann tapi ekki niður kunnáttunni.
Svo er bara að skella sér í ræktina svona aðeins fyrir jólin......
20 nóvember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli