19 desember 2007

Jólin eru að koma..............

..........eftir 5 daga.
Held ég hafi sjaldan verið jafnslök og þetta árið, nema kannski í fyrra en þá var ég svo slöpp (óléttan sko). Desember hefur liðið hægt og rólega og við ósköp róleg hér í sveitinni. Búið að baka, þrífa, kaupa jólagjafir, föndra jólagjafir, pakka inn, skrifa á kortin og ég veit ekki hvað. Eina sem er eftir er að smella upp trénu og skreyta. Hef reyndar smááhyggjur af þessu trémáli. Hr. Ásgeir er ansi aktívur í göngugrindinni og annað hvort verður tréð hengt upp í loftið eða hann fær ekki göngugrindina sína í stofunni. Finn út úr þessu seinna.

Er að fara að senda jólakortin og síðustu pakkana og sækja svo ungfrúna í skólann. Næstsíðasti dagurinn í dag og jólaballið í kvöld.

Smelltum okkur á Akureyri í gær og gerðum góða ferð þar. Fórum reyndar bara 3, skildum Elínu eftir í góðu yfirlæti hjá Hörpu Hlín vinkonu hennar og þar gisti hún í nótt. Hún var reyndar á báðum áttum, því hún var ekki viss um að Skyrgámur myndi fatta þetta og hún fengi þá ekkert í skóinn. En við höfum tröllatrú á Skyrgámi og ég er viss um að hann fann Elínu í nótt, þótt hún væri útá Skagaströnd.

Dimmustu dagarnir eru svo skemmtilegir þegar öll jólaljósin lýsa þá upp. Það er svo gaman að keyra um þéttbýli og skoða skreytingar og ég er ekki frá því að fólk sé alltaf að reyna að toppa nágrannann......... Ekki eru skreytingarnar í sveitunum neitt síðri.

Jæja, best að smella sér á Ströndina í pósthúsið.

1 ummæli:

Heiðagella sagði...

Ja hérna, hún er á lífi... var búin að gefa upp alla von um nýtt blogg.....

hehe. góða skemmtun í jólabrasinu....
Kv. heiðagella