03 júní 2008

Ísbjörninn

Hélt satt að segja þetta væri rugl í morgun, ísbjörn á Skaganum. En svo var víst raunin og bangsi var svo felldur rétt fyrir hádegið. Enda hvað annað hægt að gera, engin viðbragðsáætlun til - enda 20 ár síðan ísbjörn steig hér síðast á land og allir búnir að gleyma því.

En Skagfirðingar komust í heimsfréttirnar og ekki alveg allir ánægðir, amk er Árni Finnsson fúll yfir örlögum bangsans.

Mér finnst þetta réttur endir, enda hefði ég ekki viljað mæta bangsa hérna, nei takk. Lögreglan stóð sig með prýði í þessu verkefni. Ófrýnilegur er kjafturinn á þessu dýri.

Mynd: skagafjordur.com

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Tjah .. þetta er allavega ekki bangsi bestaskinn :/