13 september 2008

Smala, smala, smala

Hér er endalaust verið að smala, enda september mikill annamánuður í því. Göngur nr. 2 í dag og svo aftur um næstu helgi. Við buðum bekknum hennar Elínar í réttir síðasta sunnudag og hélt hún upp á 8 ára afmælið sitt þar. Þetta lukkaðist rosalega vel og allir ánægðir eftir daginn.
Ég er búin að sjá að þetta er mjög sniðugt, ekki þarf að vaska upp og þrífa eftir krakkana, bara pappadiskar og glös og allir borða úti !!!! Finn eitthvað álíka sniðugt næsta haust.
Svo er fjölskyldukaffi á morgun og þar með er afmælispartýjum þessarar fjölskyldu lokið þetta árið :)

Er að fara til RVK næsta fimmtudag, í KHÍ í stærðfræðina. Svo best er að fara að gíra sig inní að þurfa að læra heima, skila heimadæmum og lesa pistla á netinu. Hlakka til.

Annars er allt hér eitthvað tíðindalítið, litli bóndinn unir sér mjög vel í leikskólanum, ungfrúin í skólanum og allt í lukkunar standi.

1 ummæli:

Heiðagella sagði...

klukk :o)