Hef alveg nóg að gera þessa dagana. Hauststörfin kalla á mann: sláturgerð, hakka kjöt, ganga frá kjöti, kæfugerð, smala, sóna lömb og ég veit ekki hvað. Svo er alveg nóg að gera í náminu, er endalaust að reikna einhver dæmi. Það hefur gengið vel hingað til, skila heimadæmum 4 á morgun. Þetta er svona passlega mikið að gera.
Ásgeir heldur manni alveg á hreyfingu þessa dagana, hann stoppar ekki eina sekúndu. Það þarf að rannsaka allt og prófa. Klifra út í glugga, fikta í skápum og skúffum og tæta eins mikið og hann getur.
Nenni ekki að blogga um títtnefnda kreppu, er hætt að horfa og hlusta á fréttir......
19 október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli