Er búin að vera rosadugleg að prjóna síðustu daga og afraksturinn er þetta flotta vesti á Elínu Ósk. Nú er í framleiðslu vesti með V-hálsmáli á Ásgeir með sama mynstri, bara bekk niðri.

Er nú samt ekki eins dugleg og sumar konurnar í vinnunni, vá þær eru svakalega fljótar.
Er að fara í próf á morgun í stærðfræðinni, er búin að fá 8 verkefni til baka og meðaleinkunnin er rétt um 9,5 á þeim öllum, ekki amalegt það. Svo eru bara 2 verkefni eftir og þá er ég komin í jólafrí. Er búin að sækja um 2 fög eftir áramót, hlakka til.
Í lokin ein mynd af monthananum honum Ásgeiri. Sæll og glaður komst hann í stiga.

6 ummæli:
Vá flott maður.. get ég búist við að fá svona í fullorðinstærð... langar þó meira í kjól, á svona vesti....
knuz sys
Humm ... í hvaða námi ert þú?
-Heiða mín, prjóna kjól á þig þegar það verður til svartur lopi í landinu, er víst uppurinn hjá ÍSTEX.
-Hugrún, við tölum greinilega ekki saman, við Elva Þóris erum í viðbótarnámi í stærðfræði í KHÍ/HÍ.
er kreppan komin í sauðféið líka, ég hélt að rollur gengju með ull alveg sama hvernig efnahagsástandið væri..
en ef þér leiðist, má kjóllinn alveg vera í dökkgráu. jhehehe
knuz sys
pakkinn er kominn í hus....
knuz sys
Hæ hæ, var að "njósna" á síðunni hennar heiðu og sá linkinn á trompetspilarann voðalega er hún mikið skott :)
knús
Rósa
Skrifa ummæli