Hæ hæ Maður gæti haldið að maður væri á Norðurpólnum þessa dagana. Þetta er nú ekki eðlilegt að það komi vitlaust veður í september. Í fyrradag keyrði ég á Reykjaströndina og gisti þar. Það var nú ekki spennandi veðrið þann daginn, slydda og fýla en viti menn. Daginn eftir, semsagt í gær, þurfti ég að keyra til Siglufjarðar. Það er nú fínt að fara á Sigló í góðu veðri en í gærmorgun var ekki gott veður. Snjóþekja og hálka meiripart leiðarinnar gerði okkur lífið leitt. Svo var reyndar fínt að keyra til baka upp á Krók. Ég fór síðan aftur út á Strönd að ná í Elínu og þá var aftur komið leiðindaveður og það hefur haldist síðan. Það snjóaði jólasnjó hér í gærkveldi, í logni. Í dag er farið að skafa svo ekki er þetta spennandi. Ja, ef þetta er ekki til að gera menn þunglynda þá veit ég ekki hvað................................ Annars er bara nokkuð rólegt hér í sveitinni, fyrir utan þetta vesen á veðrinu.
Ciao (er að læra ítölsku þessa dagana)
|
3 ummæli:
Helló !
Rakst á síðuna þína & ákvað að kvitta :)
Kveðja Helga Lára
Klukk
Hæ hæ Dagný mín
Takk fyrir afmæliskveðjuna.
Bestu kveðjur
Anna Magga
Skrifa ummæli