03 september 2005

Komið haust??

Jæja gott fólk...........
Nú lítur út fyrir að það sé komið haust (eða veðrið hagar sér alla vegana svoleiðis).
Ég fór í afmæli hjá Svenna brósa í gæreftirmiðdag. Lentum þar í brjáluðum tertum og ég veit ekki hvað. Ekki amalegt það, takk fyrir mig.
Svo er best að fara að huga að næsta afmæli í familíunni, á föstudaginn verður Elín Ósk 5 ára og við ætlum að hafa afmæli þá. Það er nebbilega þannig í þessari familíu að allir eru að rembast við að vera bændur og þá er nú ekki gott að hafa afmæli um helgar í september.................... göngur og aftur göngur og smala og slátra og sóna og vigta.................... Þannig að afmælið er á föstudegi kl. 17 og hananú.

Það gengur bara þokkalega í vinnunni þessa dagana, er með yndælisbörn í 4. bekk...............

Hef svosem ekki meira að segja í bili............

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

til hamingju með afmælið Elín á föstudaginn:)