Í gær, laugardag, smelltum við okkur á Landbúnaðarsýninguna á Sauðárkróki. Þar var margt sniðugt en ég hefði alveg viljað sjá fleiri landbúnaðartæki. Það er alltaf gaman að skoða nýjar græjur. Annars voru þarna nokkrar vélar, fjórhjól og snjósleðar, kerrur og fleira í þeim dúr. Elín Ósk var alveg gagntekin af fjórhjólunum og eins og sjá má tekur hún sig vígalega út á einu þeirra. Hún var alveg til í að fá eitt svona í sveitina ( og ég líka................)
Svo var líka mikið um að vera, hestamó
t, kúasýning, kálfateyming fyrir yngstu kynslóðina, hrútasýning og húsdýrasýning. Mamma og pabbi voru þarna með 6 lifandi refi í búrum og svo voru þau einnig með sútuð skinn til sýningar (sjá mynd). Þá voru þarna einnig minkar, minkaskinn, geitur, kálfar, hrútar, hænur, endur og kettlingar. Þessi húsdýr vöktu mikla lukku hjá yngri kynslóðinni og þeir eldri voru ekki síður áhugasamir. Þessi sýning er gott framtak hjá Reiðhallarmönnum. Svo átti pabbi hrútinn sem varð í þriðja sæti á hrútasýningunni, til hamingju með það gamli...........
Jæja, svo í dag ætlaði ég að eyða deginum í tiltekt, þvottastúss og fleira sem maður nennir ekki alltaf að gera á virkum dögum. Nei, viti menn, kl. 9:00 í morgun byrjaði Doddi að suða um að ég kæmi með sér í Sævang, á Meistaramótið í hrútadómum. Ég var nú ekki að nenna því, en eftir
mikið suð gaf ég eftir. Við smelltum okkur því á Strandir og fengum okkur þessa ljómandi fínu kjötsúpu í Brú. Svo var brunað í Sævang og við komum þangað kl 14:00 þegar allt var að byrja. Ég aðstoðaði Elínu í flokki óvanra hrútadómara en Doddi keppti í "atvinnumannaflokkinum". Eftir dómstörf fengum við okkur kaffihlaðborð að hætti Strandakvenna og aldrei svíkur það. Svo kom að úrslitastundu. Fyrst tilkynnti Jón Viðar úrslit í flokki óvönu dómaranna og ekki höfðum við mægður neinn vinning. Svo kom að hinum flokknum og haldiði ekki að minn kall hafi gert sér lítið fyrir og sigrað. Að launum hlaut hann hin ýmsu gjafabréf og nýjan farandgrip til minninar um Brynjólf ráðunaut þeirra Strandamanna til margra áratuga. Gott hjá mínum manni. Svo nú bíð ég spennt eftir því hvenær hann býður mér í óvissuferð..................
Jæja, læt þetta duga í bili
21 ágúst 2005
Helgarferðalög
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)




2 ummæli:
hæ lubbar, bara að kvitta fyrir innlitð,
knuzzzz heiða gella
Veit ekki hvernig ég endaði hér?Þetta gerist þegar maður er að slæpast á kontórnum.
ótrúleg frammistaða húnvetninga í Sævangi;) Þú verður að gefa kallinum hraustlega í nefið upp á þetta
Haztala
Addi Palli
Skrifa ummæli