| Jæja, þá er mín bara mætt í vinnuna eftir langt og gott sumarfrí. Það kom að því að setjast við skrifborðið og skipuleggja fyrir næsta vetur. Við mæðgur erum búnar að hafa það gott í sumar, vaka aðeins lengur og sofa stundum út til 9 eða 10. En í morgun breyttist þetta allt saman, því miður...................... Daman ætlaði að mæta í leikskólann og þá var bara best fyrir mig að skella mér aðeins í vinnuna og kíkja á liðið, hvernig skipulagning gengi osfrv. Satt best að segja var ekkert svo erfitt að vakna kl. 7 í morgun, enda við öll að fara á fætur, Doddi í löndun og við í leikskóla og skóla. Þetta gekk barasta ljómandi vel, enda farið fyrr að sofa í gærkveldi, miðað við önnur kvöld. Á leikskólanum var búið að breyta ýmsu: aldursskipta á deildum, svo núna er Elín eingöngu með eldri krökkunum og þessi litlu eru alveg sér. Svo er byrjað á morgunmat, þannig að núna þarf ungfrúin ekkert endilega að gleypa í sig morgunmat áður en farið er af stað (en ég held að matargatið þurfi nú sinn morgunmat). Mér sýnist að allir séu bara ánægðir með þessa breytingu. Skipulag skólans er á fullu og mér sýnist að ég fái að kenna 4. bekk og síðan eitthvað pínu á unglingastigi, það verður bara gaman að fást við það. Svo byrjuðum við á haustverkunum í gær!!!!!!!! Við gengum um flóann og smöluðum öllu þar. Svo voru öll lömbin vigtuð og 14 tekin frá til slátrunar á fimmtudag. Nú er um að gera að vera hagsýnn bóndi og reyna að fá sem mestan pening fyrir gripina og nýta sér sumarálag og aukagreiðslur. Ekki hefur nú verið úr miklu að moða síðustu ár, en þetta fer allt batnandi núna. Og væntanlega slátrum við aftur í ágústlok, þ.e.a.s ef einhver lömb verða orðin væn þá. Endilega skráið inn comment, svo ég viti hverjir séu að skoða síðuna, það er svo gaman að fá heimsóknir, kv. Dagný R |
10 ágúst 2005
Byrjuð að vinna
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ hæ
Já, er ekki bara fínt að vera byrjuð að vinna aftur, svo verðum við að fara að reka saumaklúbbinn úr sumarfríi aftur, ekki satt. Hver er næstur í röðinni? Treysti á að þú munir það....
Bestu kveðjur
Anna Magga
hæ hæ frænka!
Gaman að sjá að þú ert með blogg...á örugglega eftir að kíkja oft á þetta:)
Skrifa ummæli