Þá kom ágúst með strákúst........................ Nú hyllir undir að sumarfríi ljúki, 10 dagar eftir, púff, en það verður samt fínt að fara í vinnuna aftur. Allir í familíunni segja að þetta sé nú fína djobbið, bara 3 mánaða frí og fleira. Ég held að þetta lið kunni bara ekki að telja, ég fékk 2 mánuði í frí núna og það er bara nauðsynlegt til að hlaða batteríin fyrir komandi vetur. Mikið er nú búið að bralla í sumar: fara í Sigölduvirkjun, slæpast í RVK og fleira. Svo fyrir tveimur vikum fórum við familían, ásamt mömmu og Tomma litla brósa í bústað á Flúðum, það var geðveikt.............. sól og gott veður allan tíman, afslöppun í heita pottinum með kalt hvítvín og hyggeligheder............ við ætluðum varla að hafa okkur heim. Það er ljóst að við gerum þetta að ári og þá verðum við viku!!! Svo í fyrradag skelltum við okkur norður í Árneshrepp. Ég var búin að humma þetta fram af mér allt sumar. Minningin um vonda vegi var lífseig. En hvað gerir maður ekki fyrir kallinn sinn á afmælisdaginn? Jú ég lét plata mig þarna norður. Rosafínt að fara þetta, þótt seinfarið sé. Við tjölduðum í Norðurfirði og fórum í sund í Krossneslaug. Þessi laug er frábær!!!!!!!!!!!! Þar hittum við Björn og Böddu á Melum og þau buðu okkur í kaffi næsta morgun. Svo við sváfum í brjáluðu roki í Norðurfirði og kl. 6 um morguninn fór að rigna!!! Oj oj oj oj oj Við rifum allt saman og fórum í kaffi að Melum 1. Svo keyrðum við norður í Ingólfsfjörð en nenntum ekki í Ófeigsfjörð. Þá var brunað heim og allt tekið upp úr töskum blautt og slubbulegt.... Svo núna er lítið framundan, nema bekkjarmót 13. ágúst. Við í árgangi 1976 úr Varmahlíðarskóla höldum smá teiti þá um kvöldið, það verður stuð. Vonandi fer mín svo að nenna að blogga oftar, en best er að lofa sem minnstu. DRÚ |
04 ágúst 2005
Kominn ágúst
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli