22 júlí 2005

Heyskap lokið :-)

Jæja gott fólk...............
Þá er fyrri slætti lokið og hafðist á viku. Byrjað var að slá á fimmtudaginn í síðustu viku og svo var klárað að rúlla á miðvikudagskvöldið. Það var bara þokkaleg uppskera, svona miðað við þurran júní og kaldan maí. Rúllað var í mörgum hollum. Stefán á Ytri-Ey kom og rúllaði fyrir okkur túnin hér fyrir neðan, alls 105 rúllur. Svo kom hann Svenni bróðir með nýju græjuna sína á miðvikudaginn og rúllaði 127 stykki, nokkuð gott það. Eins og sjá má er þetta rosagræja. Svo í gær var verið að binda tæpa 500 bagga upp í túnaleiguna hjá Sigrúnu mágkonu og hafið það af. Svo nú er loksins hægt að fara að slá hlutunum upp í kæruleysi og fara í sumarfrí...............

Við erum að fara á Flúðir á sunnudag, í bústað og verðum þar fram á miðvikudag. Þá er alveg að koma versló, svo maður skellir sér vonandi eitthvert þá helgina, það fer bara eftir veðri hvert maður fer. Ég bauð mömmu með í bústaðinn og ég held að litla fylgidýrið, hann Tómas brósi komi með, það er bara ágætt að fá sér smáfrí.

Best ég skelli svo hér mynd úr brúðkaupinu hjá Smára og Örnu, þau voru æðisleg og veislan þeirra frábær. Svo skelltu þau sér til Króatíu í tvær vikur..........................

Annars vona ég að sem flestir eigi gott sumarfrí, nái að slaka á og hlaða batteríin fyrir næsta vetur.

Heyrumst vonandi sem fyrst......

1 ummæli:

Anna Magga sagði...

Blessuð
Sá ekki póstinn frá þér fyrr en í dag, því mamma áframsendi hann á vinnupóstinn minn. Er sem sagt búin í yndislegu sumarfríi, en ósköp ágætt svo sem líka að koma aftur í vinnuna. En til hamingju með að vera byrjuð að blogga, nú verðum við bara að vera duglegar að "commentast" á til skiptis.

Bestu kveðjur
Anna Magga