Jæja þá held ég að sumarið sé alveg að skella á hérna. Sólin er skriðin úr felum og hitastigið hækkar óðfluga, loksins. Það fer alveg að líða að því að maður geti farið að heyja, svona þegar ekki er rigningarspá. Annars er barasta þokkalegt hérna, 10-15 gráður og algert sprettuveður. Við skelltum okkur suður á sunnudaginn og komum heim í gær. Það var langur listi af verkefnum og ég er alveg búin að sjá það að þetta gengur ekki að fara svona sjaldan suður, maður er alltaf með of langan lista. Ég er búin að reyna að segja Dodda þetta, en honum líkar nú ekki of vel í RVk svo þetta gengur svona. Tómas litli brói og Úlfar frændi fengu að fara með og þetta var bara fyndið út í eitt. Úlfar var að fara í annað skipti til RVK og allt var sko æði, hann er 5 ára. Við fórum með hann í Húsdýragarðinn, í sund, í Kringluna, gefa öndunum og fleira og hann var alltaf jafn hrifin, ja nema kannski í búðum honum leiðist það. Svo talaði hann út í eitt og ungfrú Elín var að verða pirruð á því að komast aldrei að!! En það voru allir rosafegnir þegar við komum heim í gær og pabbi sótti gaurana. Doddi fór strax í löndun og heim var komið og því sátum við Elín einar heima í gærkveldi og slöppuðum af. Í dag fór ég svo með hana til tannsa, að gera við skrítnu tennurnar. Hún var rosalega dugleg, auðvitað. Nú svo höfum við bara verið að slæpast hjá Sigrúnu í kaffi, þvo þvott og hanga í tölvunni í dag, alveg brjálað að gera eða þannig. Nóg verður nú að gera næstu dagana, enda alveg að koma að þessu brúðkaupi hjá Smára og Örnu. Best að fara og hengja út...................... |
06 júlí 2005
Sumar og sól
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Mín bara farin að blogga :)! Ég held að ég slái nú öll veðurkvörtunarmet þegar að ég segi að ég hafi orðið veðurteppt í ofsaveðri þann 3. júlí síðastliðinn. Ég sem fór úr snjónum og kuldanum fyrir norðan í sumarsólina hér fyrir austan! Vonandi náið þið nú að heyja þrátt fyrir rysjótt veður. Ég bið að heilsa öllum sem ég þekki :)
Skrifa ummæli