30 júní 2005

Veðurfréttir :-(



Svona lítur nú nýji traktorinn hans Dodda út, hann lét Elínu prufukeyra og ekki annað að sjá en að henni hafi líkað þetta ágætlega. Nei án gríns, þetta er rosagræjan sem Úlfar Hörður frændi fékk í afmælisgjöf um daginn.

Jæja, nú er ég alveg hætt að taka mark á veðurstofunni og þeirra spám á RÚV. Í gær átti að vera þessi einmuna blíða hér, nei en viti menn, það fór að rigna í gærkveldi og hefur ekki hætt síðan!!!!!!!!!!hvað á þetta að þýða eiginlega? Það er ekki hægt að fara og slá garðinn í þessu.... Mér er svosem nokk sama þó það rigni annars staðar en hér, en er ekki tími til kominn að við förum að fá sumar og sól hérna. Það hefur reyndar stundum verið sagt að við værum hér á mörkum hins byggilega heims, ég fer bara að taka undir það SÓL SÓL SKÍN Á MIG !!!!!!!!!!!!!!!!
Glætan að maður nenni í útilegu þessa helgina ef þetta verður svona.


Annars er barasta allt í rólegheitunum, dúlla mér við að taka til, þvo þvott og fleira í þeim dúr. Ella sprella fer með pabba sínum á morgnana í leikskólann og ég get tekið daginn rólega. Annars er maður aðeins farinn að gíra sig inn á brúðkaupið eftir viku, búið að fara í smásjæningu en meira eftir í næstu viku. Það verður sko stuð.........


Engin ummæli: