| Hæ hæ. Nú á að fara að reyna að segja frá því sem gerist í sveitinni dagsdaglega eða svo. Það er nú mest lítið þessa dagana, skítakuldi og grasið sprettur hægt á túnunum. Við erum að fara að skella okkur í að keyra eins og einni ferð á fjöll, til að tæma túnin, enda ekki sniðugt að hafa grasbítana þar endalaust. Þá skelltum við okkur suður Kjöl á þriðjudaginn og heim aftur um kvöldið. Það var nú meiri ferðin, við fórum alla leið í Sigölduvirkjun að sækja þennan forláta Deutz traktor sem húsbóndinn var að fjárfesta í. Rosagræja - og við fengum ódýran áburðardreifara líka. Svo brunaði Doddi heim yfir Kjöl en við mægður vorum að slæpast á Suðurlandinu fram yfir kvöldmat, því við ætluðum að vera á eftir honum yfir Kjöl, svona til öryggis. Það fór nú þannig að ég náði honum svo í Langadalnum og þá gat ég farið heim að sofa enda klukkan að verða 2 um nóttina. Aumingja Elín svaf og svaf í bílnum og fékk svo að vera heima daginn eftir. Þetta leit nú reyndar ekki vel út um morguninn, allt hvítt á Kili og hafði meira að segja skafið um nóttina. Annað markvert er nú ekki að gerast, Doddi alltaf í löndun og ég hangi heima yfir þessum skemmtilegu húsverkum. Annars er ég búin að vera rosadugleg að baka síðastu daga og á núna fullt af tertum í frysti, ekki amalegt það!! Heijsa í bili Dagný |
23 júní 2005
Blogg í sveitinni :-)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli