29 júní 2005

Þetta gengur ekki...............

Jæja komin enn önnur vikan og ég alls ekki of dugleg að blogga

Síðan síðast hefur nú eitthvað gerst í sveitinni. Við fórum með eina ferð af kindum á fjall á föstudagsmorguninn á gamla Intracinum. Það gekk ljómandi vel og 101 stykki trítlaði sælt og glatt um heiðarlöndin!! Það var nú ljómandi fínt veður meðan á þessu stóð en eftir hádegi átti það eftir að breytast. Allt í einu fór að rigna og það ekkert smá, dembur á dembur ofan. Húsbóndinn var að bisa við að koma áburðardreifaranum í lag og gekk það þolanlega í rigningunni. Heimasætan fór í afmæli þennan dag á Skagaströnd og var hundfúl yfir því að það skyldi rigna á hana í sparifötunum :-)

Laugardagurinn fór nú að mestu í afslöppun. Mamma, Tómas og Úlfar frændi kíktu í miðdegiskaffi og fengu þessar fínu tertur með kaffinu, ekki amalegt það. Og auðvitað var þeim líka boðið í kvöldmat, pitsuveislu að hætti hússinns og allir borðuðu á sig gat eftir það. Enn hélt áfram að rigna, loksins, loksins, enda komst afgangurinn af áburðinum á túnin í dag og nú má sko rigna............

Sunnudagurinn var blautur framan af. Það hafði rignt alla nóttina og rigndi fram eftir degi. En eftir miðdegiskaffi var eins og hendi væri veifað, sólin braust fram og hitinn rauk upp í 20°C, ja viti menn. Við mægður drifum okkur út að slá garðinn, enda hafði grasið sprottið ógnvænlega mikið þessa rigningardaga. Það var varla að garðsláttuvélin góða hefði það af að komast í gegnum frumskóginn. En þetta hafðist að mestu og ég er sárþjáð í handleggjunum eftir allt þetta bras.

Svo þessa vikuna hefur veðurblíðan leikið við okkur og ekkert lát á henni, sem betur fer. Vonandi helst hún fram yfir 9.júlí en þá erum við að fara í brúðkaup. Það er ekki algengt að það fari fram brúðkaup í Höskuldsstaðakirkju. En Smári frændi Dodda og hún Arna Hagalínsd. eru að fara að ganga í það heilaga þann dag. Mikið hlökkum við til og vonandi gengur veðrið í lið með okkur um að gera þennan dag skemmtilegan og efirminnilegan fyrir alla. Talandi um þetta brúðkaup, þá þarf maður nú að sjæna sig aðeins til. Allir þurfa að fara í klippingu og við ætlum í greiðslu við Elín. Svo fékk ég svo æðislega gjöf frá krökkunum í 10.bekk og foreldrum þeirra á skólaslitunum. Ég fékk gjafabréf á Vivu í litun, plokkun, andlitsbað, handsnyrtingu og fótsnyrtingu og ég er að hugsa um að nota þetta fyrir brúðkaupið, maður þarf nú að líta vel út annað slagið, er þægi............................

Ég sit hérna ein heima og velti því fyrir mér hvað ég eigi að fara að gera, Doddi í löndun eins og vanalega og Ella sprella gella á leikskólanum. Þetta er síðasta vikan hjá henni fyrir sumarfrí og henni finnst þetta ómissandi að fara á leikskólann, enda þar einhverjir sem nenna að leika við hana og hafa ofan af fyrir henni. Kannski ég fari að taka aðeins til, það er eins og rykið komi alltaf með sólinni, alla vegana sést það rosalega vel þegar sólin skín. Ég þarf alla vegana ekki að fara að baka, ég á svo mikið af kaffibrauði í kistunni. Um daginn átti ég sex tertur og eitthvað fleira en þeim fer nú reyndar fækkandi þessa dagana. Við í kvenfélaginu erum með erfidrykkju á föstudaginn og þá læt ég reyndar tvær tertur. En samt eitthvað er eftir. Og ég þarf líka að steikja 125 pönnsur og sykra, góða skemmtun!!!!!!!!!!!!!!!!!

Jæja, ég reyni að vera duglegri að blogga, en ég gleymi þessu stundum, það er svo mikið að gera við ekki neitt..............................

Dagný


Engin ummæli: