| JónsJæja, þá er víst Jónsmessunótt liðin og maður átti víst að gera alls konar kúnstir samkvæmt hjátrúnni. Best hefði verið að fara og velta sér upp úr dögginni, hún á víst að hafa lækningamátt. Eða þá að safna sjö blómategundum, hverri með sinn töframátt. Það eru víst fleiri tiltæki en nei, nei, við sváfum bara af okkur þessa nótt. Enda held ég að við færum seint að velta okkur upp úr dögginni, svona búandi við þjóðveginn, það gæti valdið umferðarslysum. Nóg er nú ef maður reynir að fara í sólbað, það er alltaf hætta á því að einhverjir glápi svo mikið að þeir keyri útaf............. en það hefur þó sem betur fer ekki gerst.........ennþá................... Við vorum rosalega dugleg í morgun, smöluðum túnið og keyrðum einni ferð upp á Þverárfjall. Svo núna er húsbóndinn að bisa við að setja dreifarann aftan í Intracinn (skrýtnu vélina) og ætlar að klára að dreifa á, loksins, ég var farin að örvænta.................. Svo auðvitað er að koma helgi og þá gerir maður nú kannski eitthvað skemmtilegt. Ég veit af Jónsmessuhátíð á Hofsósi og markaði í Lónkoti, aldrei að vita nema maður skelli sér þangað. Nú fara víst að hellast yfir mann þessar bæjarhátíðir; Bíldudalsgrænar baunir, Matur og Menning, Hafnardagar, Kósídagar, Sæluvika, Humarhátíð, franskir dagar, danskir dagar, færeyskir dagar og ég veit ekki hvað. Maður þarf að vera í fullri vinnu við að fylgjast með þessu og skoða, hvort eitthvað sé áhugavert. Það væri nú gaman að fara á Humarhátíð um næstu helgi!! En annars erum við að fara í saumaklúbbsgrill í réttinni á föstudaginn, þannig að við förum ekkert þá helgina og svo er brúðkaup í fjölskyldunni helgina þar á eftir. Ferðalög verða að bíða. Fleira er ekki í fréttum í dag, nú verða lesnar veðurfregnir: Veðurfregnir les DRÚ. Veðrið kl. 15: súld, milt og hiti 11°C. Óver end át................. |
24 júní 2005
Jónsmessan
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli