Jæja, þá sit ég í vinnunni og blogga. Er með 4. bekk í samræmdu könnunarprófi í íslensku og nota tímann á meðan í alls konar tímaeyðslu. Þetta er ekki svo erfitt að sitja yfir, spila disk og afhenda prófhefti, líma límmiða og passa að enginn sé að svindla. Ekki það að þessum yndislegu börnum dytti aldrei í hug að svindla, þau eru svo heiðarleg og góð.
Annars hefur nú lítið verið að gerast síðustu dagana, vinna, borða, sofa. Það er vinsæla rútínan. Við erum að koma seint heim á daginn og maður er svo þreyttur að heimilisstörfin sitja oft á hakanum, því miður, en svo tekur maður aríur stundum og sjænar allt til................
Svo ætlum við mamma í lifrarpylsugerð á laugardaginn og ég held að það sé bara fínt að fá smá pylsu með hafragrautnum í vetur.
Svo erum við Elín Ósk búnar að kaupa okkur far til Danmerkur um páskana. Ætlum að hitta Heiðu og vera þar í 10 daga.............gaman................stuð.........
Endilega skrifið inn í comment, svo ég viti að einhverjir séu að lesa þetta blaður hjá mér..............
Ciao ciao
20 október 2005
HÆ enn og aftur
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Sæl skvísa!
Ég kíki alltaf á bloggið þitt til þess að sjá hvernig ykkur gengur án mín þarna fyrir norðan :) Ég get ekki sagt að ég sakni kennslustarfa mikið en ykkar sakna ég alveg heiftarlega!!! Vinsamlegast skrifaðu ekki með rauðu letri aftur Dagný mín...mér leið eins og ég væri að fá sýrubackflash!! :) ........held ég
ég er að reyna að skrifa inn í 3 tilraun, þetta dettur alltaf út. Frábært að þið séuð að fara í baunaland, mér finnst að þið ættuð að kippa gömlunni á Ingveldarstöðum með ykkur.
Bara kvitta fyrir mig, kíki alltaf reglulega að sjá hvað er að frétta hinum megin við ána ;)
Bestu kveðjur
Anna Magga
Skrifa ummæli