| Jæja, komin ný vinnuvika og tími til kominn að láta aðeins í sér heyra. Það er með ólíkindum hvað tíminn líður hratt, áður en maður veit af eru bara jólin komin...... Nú fer að koma að annarskiptum í skólanum og þarf að fara að huga að könnunum / prófum. Þetta tekur allt sinn tíma en ég er svo fyrirhyggjusöm að vera með símat, þannig að þetta er nú ekkert rosalegt mál, bara hafa sig í þetta verkefni. Lifrapylsugerðin tókst bara með ágætum og alveg ljómandi gott að eiga svona hollt og gott í kælinum, Elín er alveg óð í að fá hafragraut og lifrarpylsu á morgnana. Svo bíða okkar annars konar hauststörf hangandi út í húsi......................... Í síðustu viku varð það ljóst að sóknarpresturinn okkar er að fara frá okkur. Mikið rosalega eigum við eftir að sakna þeirra allra, líklega á Elín eftir að saknar Rannveigar sinnar mest, hún talar mikið um þetta núna og veltir því fyrir sér hvort Rannveig geti ekki bara flutt til okkar, ætti nú ekki að vera mikið mál!!!! Vonandi verðum við jafnheppin með prest eins og við höfum verið undanfarin ár. Í gær héldum við foreldrafund í skólanum sem lukkaðist bara ljómandi vel. Ég var alveg að farast úr stressi fyrir fundinn, gleymdi að borða kvöldmatinn og fleira. Enda hélt ég að það væri að líða yfir mig af stressi. En þetta blessaðist nú allt saman, sem betur fer.............. við erum svo miklir snillingar. Í gær var einnig kvennafrídagurinn og ég ákvað að hætta ekki í vinnunni kl. 14:08, vegna fundarundirbúnins. Svo er ég ekki alveg sammála öllu um kvennafrí, finnst þetta hálfgerð tímaskekkja. Kannski er ég sú eina sem hugsar svona, hver veit. Um helgina erum við að fara suður og á sunnudaginn á að skella sér á Kalla á þakinu. Kannski verður eitthvert búðarráp líka, hver veit. Heyrumst seinna................ |
25 október 2005
Hmmm
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Er mín bara orðin veðurteppt sjónvarpsstjarna ;) Sá aldrei þessu vant fréttir og hver er aðal stjarnan nema hún Dagný mín. Vona að þú sért komin heim, heilu og höldnu.
Kær kveðja
Anna Magga
Vondandi hefuru komist heil heim úr brjálveðrinu á klakanum. Bið að heilsa Dodda og Elínu.
Þú færð 5 stjörnur fyrir stórkostlegan leiksigur í sjónvarpi :)
Knúsur
Hrabbý
Skrifa ummæli