Jæja gott fólk, nú er sko nóg af fréttum.
Síðan ég ritaði hér síðast hefur nú margt og mikið gerst.
Við fjölskyldan vorum búin að ákveða fyrir löngu síðan að fara suður síðustu helgina í október og við Elín ætluðum á Kalla á þakinu. Svo auðvitað þurfti veðrið að stríða okkur, þannig að við fórum ekki suður á föstudegi eins og við ætluðum. Á laugardagsmorgni var fínt veður og við drifum okkur af stað um hádegi eftir að hafa gefið kindunum vel. Ferðin suður gekk ljómandi vel, þrátt fyrir lágarenning í Vestursýslunni...........
Við gerðum margt skemmtilegt í bænum, búðarráp og fleira. Á sunnudegi fórum við svo á leikritið og skemmtum okkur konunglega. Þetta er snilld og allir leikararnir eru frábærir, mæli með þessari sýningu.
Á sunnudagseftirmiðdegi, rétt rúmlega fjögur skellum við okkur af stað, vorum búin að skoða veðurspá og allt átti að vera í þokkalegu lagi heim á Hól. En viti menn, á Holtavörðuheiðinni var rosalega hvasst og blint og við vorum lengur en venjulega yfir, höfðum okkur samt. Héldum að þegar við kæmum ofan í Hrútafjörð yrðum við sloppin. Nei, nei, nei, ekki var það svo gott.
Það var lágarenningur alveg yfir í Miðfjörðinn. Svo þegar við komum fram hjá Laugarbakkaafleggjaranum keyrum við inn í vitlaust veður. Löng og mikil lest var sem hreyfðist hægt fram á við og við fylgdum auðvitað með. Svo stoppaði allt saman og þá var ekki aftur snúið. Bílarnir fóru að festa sig, fara útaf, blotna og drepa á sér. Okkar Kia-kaggi fraus að framan og við enduðum útaf. Þar sátum við svo í 2 klst. og biðum eftir að okkur væri bjargað. Rétt fyrir 10 um kvöldið kom svo björgunarsveitin Káraborg og tók okkur yfir í sinn bíl, guði sé lof. Við vorum þó vel útbúin, þannig að okkur varð ekkert rosalega kalt.
Svo héldum við í Félagsheimilið Ásbyrgi á Laugarbakka og sváfum þar um nóttina ásamt 60 öðrum, rosa stuð. Svo daginn eftir var komið með mat handa okkur og svo var eldaður þessi dýrindis miðdegisverður, þökk sér Rauða krossinum.
Bíllinn okkar blotnaði mikið og rafkerfið er eitthvað klikk, þannig að bíllinn er ennþá á Laugarbakka og við komum heim með Björgunarsveitinni Strönd frá Skagaströnd um kl. 23 á mánudagskvöldið. MIKIÐ VAR GOTT AÐ KOMAST HEIM.
Maður hugsar sig nú tvisvar um, áður en maður fer næst suður..................................
Annars er bara allt rólegt hér, snjór og hálka........... stórhættulegt á pikkanum...............
Bið að heilsa,
03 nóvember 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli