20 nóvember 2005

Fimm vikur til jóla

Jæja, þá er mín bara byrjuð í jólabakstrinum og hefur sjaldan byrjað eins snemma og núna. Bakaði þessar ljómandi fínu smákökur í dag og baka meira á morgun. Reyndar er ég líka að baka fyrir basar hjá kvenfélaginu Heklu, en samt, jólabakstur. Svo er saumaklúbbur hér á fimmtudaginn og ég held að það verði að sletta í nokkra forma fyrir þá samkomu, enda saumaklúbbskonur frægar fyrir allt annað en að sauma á sínum fundum..............................

Hún Rósa litla frænka mín verður 20 ára á morgun, til hamingju með það elsku Rósa mín. Skemmtu þér vel í París og farðu varlega þar hjá ólátaseggjunum.

Annars bara tíðindalítið hér á Ströndinni, rok, slydda, og ég veit ekki hvað þessa stundina. Doddi er á einhverjum hrútafundi í Víðihlíð. Ég frétti reyndar af einum flottum mókollóttum á sæðingarstöð í haust, svo nú þarf ég að fara að leggja inn pöntun vegna hans, ekki hægt að láta svona grip framhjá sér fara, eða hvað............................... Veit að Doddi er ekki sammála...................... so what..................

Ligg uppi í rúmi og er á netinu, með tölvu í láni úr vinnunni. Er reyndar að hugsa um að fara að kaupa fartölvu handa okkur, hin er að verða eitthvað klikk stundum, neitar að ræsa sig og fleira, ekki nógu gott. Kannski er nóg að fá Björn Inga til að kíkja á hana?

Næsta sunnudag verður basar hjá Heklu eins og áður sagði, ALLIR AÐ KOMA Í SKAGABÚÐ !!!!! og fá sér piparkökur og súkkulaði og kaupa bakkelsi fyrir jólin, kort, pappír og fleira................

Heyrumst seinna

2 ummæli:

Anna Magga sagði...

Saumaklúbbur á fimmtudaginn ????? er hann ekki á miðvikudaginn eða er ég að rugla? Er kannski búið að baka svo mikið að það sé stefnt á fyrsta og annan í saumaklúbb ;)

Bestu kveðjur
Anna Magga
p.s. geturðu ekki skipt um kommentakerfi svo maður geti kommentað án þess að þurfa að sanna færni sína í að skrifa eftir forskrift...

Dagný Rósa sagði...

Ég held það hafi heldur betur slegið út núna, er komin fram úr sjálfri mér. Auðvitað eru saumaklúbbar á miðvikudögum..............