| Hæ hæ Jæja, þá er byrjað að telja niður til jóla í minni vinnu. Þessi siður hefur verið í nokkur ár og er bara ágætis skemmtun. Þá hefur maður ágætis viðmið: taka til, baka, þrífa, kaupa jólagjafir, slappa af og fleira sem maður gerir á þessum dögum. Gott að halda kontról á þessu............ Helgin var bara nokkuð góð: fórum á Laugarbakka á laugardagsmorgunn og sóttum Kiuna og viti menn, hún fór í gang eftir öll ósköpin. Reyndar voru stefnuljósin eitthvað að stríða okkur svo við tókum bara öryggið úr og þá var bara allt í lagi..........eða þannig........... En svo komumst við heim með hann og nú bíður hann eftir því að komast á verkstæði á morgun og láta kíkja á sig. En annars er hann til sölu ef þið hafið áhuga, eðalkaggi!!!! Fórum síðan í þetta ljómandi fína afmæli hjá mömmu og pabba eftir þessa bílferð. Það var sko boðið upp á 5 sortir af kökum og kruðeríi og maður át sér til óbóta, hef lítið borðað eftir laugardaginn. Takk kærlega fyrir okkur og PABBI TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Í DAG 7. NÓVEMBER OG MAMMA Á MORGUN 8. NÓVEMBER. Þetta er mjög sniðugt að eiga afmæli dag eftir dag, minni hætta á að afmælin gleymist. Svo var afslöppunardagur í gær: tiltekt, þvottur og fleira tilheyrandi og svo er barasta ein enn vinnuvikan komin, þetta gengur allt á ljóshraða. Annars öfundaði ég Heiðu systir ekkert smá á laugardaginn. Hún skellti sér á tónleikana með Sálinni í Köben með vinkonum sínum í Odense og það var víst geggjað stuð. Hefði sko alveg viljað vera þarna, ekki spurning. Ætla að skella mér á leirlistarnámskeið hjá Sigurlínu í Höfðaskóla næstu þriðjudagskvöld, það verður örugglega rosagaman, allir þangað. Over and out.............. |
07 nóvember 2005
40 og eitthvað dagar til jóla!!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Bara að kvitta fyrir mig, óskaðu gamla settinu til hamingju frá mér næst þegar þú heyrir í þeim.
Skrifa ummæli