| Góðir Íslendingar. Til hamingju með daginn, dagur íslenskrar tungu. Munum að við tölum íslensku á Íslandi. Gengur annars bara þokkalega þessa dagana, þrátt fyrir hálsbólgu, hæsi og annað þvíumlíkt. Þetta er nú að verða þreytandi þetta ástand en er að lagast. Maður fer að velta því fyrir sér að flytja á hlýrra svæði................... nei smá grín....................... best að vera á Norðurlandi............. Er upptekin mjög þessa dagana, á leirnámskeiði, það eru fundir og fyrirlestrar, foreldraviðtöl og ég veit ekki hvað, það er eins gott að reyna að hafa skipulagsgáfurnar í góðum gír þessa dagana. Veit ekki hvar þetta myndi enda annars. Ef þið vitið um einhvern sem vill kaupa bíl eða ísskáp með frysti, hafið samband. Kveðja úr sveitinni...... ..... ...... ..... |
16 nóvember 2005
Til hamingju með daginn..........
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Sem sagt annað hvort bíl með frysti eða ísskáp með frysti??? Er þetta afleiðing af hríðarfestu vesalings Kiunnar, kominn í hana innbyggður frystir eftir volkið???
:-)
Bestu kveðjur
Anna Magga
Anna Magga mín.
Þú getur alveg fengið Kiuna með frysti og ísskáp ef þú vilt, ég skal meira að segja koma með þetta til þín
Skrifa ummæli