Hæ hæ
Hitti Önnu Möggu í dag og hún var að "skamma" mig fyrir bloggleti, það væru ennþá 5 vikur til jóla hjá mér. Ég veit, ég skal skammast mín og nenna að blogga oftar, tímaleysi, tímaleysi.........
Í gærdag smelltum við familían okkur til Akureyrar í smáverslunarferð. Afraksturinn var fartölva, þessi fína IBM vél. Ég kem henni reyndar ekki enn á netið, hún er með venjulegu módemi en ég er með ISDN hér, þarf að fixa þetta eitthvað. Síðan brunuðum við á Reykjaströndina og skildum heimasætuna eftir í góðu yfirlæti hjá ömmu hennar og afa. Við fórum síðan í gærkveldi á stórskemmtilegt jólahlaðborð Kvenfélagsins Heklu í Skagabúð og heppnaðist það ljómandi vel. Stiginn var dans fram eftir nóttu og ég var nú frekar þreytt í morgun þegar ég brunaði á Reykjaströndina að sækja Elínu.
Við Elín fórum síðan í kveðjumessu sr. Magnúsar í Hólaneskirkju í dag. Ljómandi fín messa og mikið var ég glöð að sjá alla krakkana mína í 4. bekk syngja í NTT kórnum, þau eru snillingar............... Eftir messu var síðan messukaffi að gömlum sið með sykurpönnsum, jólakökum, kleinum og flatbrauði með hangiketi. Ljómandi gott. Mikill verður söknuðurinn af Magnúsi og fjölskyldu og ég held að Elín eigi nú heldur betur eftir að sakna hennar Rannveigar sinnar. Annars kom Rannveig í heimsókn eftir messu í dag og léku þær sér til átta en þá var mál að hátta...............
Nú er 4. desember og því 20 dagar til jóla. Eitthvað verður hægt að bralla þessa dagana, eins og að baka, þrífa, þvo og slappa af og "hygge sig" að dönskum sið.
Um síðustu helgi var vel heppnaður jólabasar hjá Heklu og margt og mikið til sölu. Alltaf stemning að fara á jólabasarinn.
Svo verður laufabrauðið steikt í vikunni, fjöldinn allur af starfsmönnum Höfðaskóla ætlar að koma saman og steikja á fimmtudaginn, þá verður sko gaman...................
Smelli hér inn að lokum mynd af dagsverki húsbóndans, slangan og grýlukertin komust upp................. Mikið rosalega er þetta nú krúttlegt í myrkrinu, finnst ykkur ekki????????????????????????????
Vonandi ekki langt þangað til næst........
|
Engin ummæli:
Skrifa ummæli