Jæja, ekki batnar bloggletin, veit ekki alveg hvað er til ráða!
Nóg að gera þessa dagana, taka til, baka, þrífa, hangsa, vinna og ég veit ekki hvað og hvað. Er reyndar rosalega róleg í þessu öllu saman enda gerist ekkert þótt maður sé ekki búin að baka 10 sortir og þrífa allt í hólf og gólf..........
Fórum til Akureyrar í gær og keyptum restina af jólagjöfunum, svo það er frá. Þá er bara eftir að pakka þeim inn og ganga frá þeim. Það var fýluveður á leiðinni, í Langadalnum nema hvað, en svo batnaði þetta auðvitað þegar við komum í Skagafjörðinn, nema hvað, og blíða það sem eftir var. Reyndar hálka en samt fínt. Geðveikt að gera í öllum búðum á Akureyri og maður hálfdasaður eftir þessa reisu.
Fer í jólafrí á þriðjudaginn og mikið verður gott að slaka aðeins á.
Heyrumst seinna,
Dagný
18 desember 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli