11 janúar 2006

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Jæja gott fólk, gleðilegt ár öll sömul.
Bloggletin alveg að drepa mig þessa dagana, eins og önnur leti..................

Hef ákveðið að halda upp á merkisdaginn 21. janúar með teiti á Hótel Dagsbrún, vinir og ættingjar velkomnir seinnipartinn. Hlakka til að sjá ykkur öll og eiga með ykkur góðan dag.

Var í saumaklúbb í kvöld, glæsilegar veitingar og skemmtilegar konur, eins og alltaf og auðvitað var fulltrúi þorrablótsnefndar að reyna að veiða einhver "skemmtiatriði" upp úr okkur. Nú bíður maður spenntur eftir þorrablótinu.

Jæja, þetta var nú bara rétt til að heilsa upp á ykkur og láta vita að ég er ennþá lifandi,
ciao

Engin ummæli: