Takk kærlega fyrir mig.
Ég er yfir mig glöð og snortin vegna afmælisins í gær. Ég átti mjög góðan dag með fjölskyldu og vinum. Dagurinn byrjaði reyndar mjög snemma þegar vinnufélagarnir mættu hér rétt um 7:30 og sungu fyrir mig og komu með heitt súkkulaði, nýbakað bakkelsi og álegg. Glæsilegt og takk fyrir. Svo fór ég að undibúa veisluna með aðstoð góðra kvenna: Vigga, Guðrún og Guðbjörg takk kærlega fyrir.
Svo kl. 17 hófust herlegheitin á Dagsbrún. Rosafín veisla og gaman og vorum við komin heim um 21:30.
Svo er ég eins og litlu börnin: réðst á afmælisgjafirnar þegar ég kom heim og margt og mikið leyndist nú í pökkunum góðu. Allt saman ofboðslega fallegt og skemmtilegt, takk, takk, takk.
Jæja, nú er bara að slappa af í dag og safna orku fyrir vinnuvikuna.
Heyrumst.
22 janúar 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Smá tékk
Til hamingju með daginn
Innilega til hamingju aftur Dagný mín. Þetta var svakalega flott veisla hjá þér og ofsalega gaman að koma, þó seint væri.
Bestu kveðjur og sjáumst á laugardagskvöldið.
Anna Magga
p.s. frábært að kommentakerfið sé loksins komið í lag aftur....
Skrifa ummæli