Annars gengur lífið sinn vanagang hér á Hólnum, ungfrúin byrjuð í 1. bekk og líkar það ljómandi vel, eins og við var að búast. Við erum reyndar í vandræðum eftir hádegi, vantar daggæslu og reiðum okkur því á góðverk góðra kvenna og karla á Skagaströnd. Takk takk.
Í gær var okkur boðið með í ferð út í Drangey og skemmst er frá því að segja að við fórum öll upp í eyju, líka hún Elín Ósk. Með í för voru Svenni bróðir og Úlfar Hörður, Tómas bróðir, Björg Eva frænka, við þrjú og svo mamma. Allir fóru upp í eyna nema mamma, hún er svo lofthrædd að það þyrfti örugglega Landhelgisgæsluþyrluna til að koma henni niður. Við fengum ljómandi gott veður í ferðinni.Jæja, best að fara að halla sér...........................
1 ummæli:
og ég sem hélt að þuklarinn (þá hrúta) Þormóður myndi verja ja..heiðurinn..... en þó gott að gamli geti þá látið að sér kveða í staðinn... fín mynd af ykkur þarna í eyjunni.. bið að heilsa öllu liðinu
Heiðagella og gríslingarnir
Skrifa ummæli