01 ágúst 2006

Þá kom ágúst með strákúst.....................

Þetta hljómar vel núna í ágústbyrjun. Sumarið hefur flogið áfram og maður þarf víst að mæta í vinnu eftur 2 vikur. Nóg að gera þangað til................

Heyskap lauk á fimmtudaginn, en þá var klárað að binda í bagga og koma þeim inn. Svo var hamast við að keyra saman rúllum og í hádeginu á föstudag voru innan við 30 eftir. Þá var ákveðið að hætta..........................

Í gærkveldi komum við úr svakareisu. Skelltum okkur í ferðalag á föstudaginn og brunuðum í Atlavík. Gistum þar í tjaldi í geðveikt góðu veðri. Svo á laugardeginum var farið fram Fljótsdal, Skriðuklaustur skoðað. Svo var farið í Végarð og lesið allt um Kárahnjúkavirkjun. Svo fórum við upp að Kárahnjúkum og skoðuðum þar það sem mátti skoða. Við vorum reyndar viss um að löggan kæmi og ræki alla í burtu, það var svo mikið af "friðsamlegum mótmælendum" á svæðinu. Eftir þessa merku upplifun fórum við niður aftur og brunuðum á Seyðisfjörð. Þar var sko þoka. Skelltum okkur í sund þar. Gistum svo á Eiðum um nóttina.

Á sunnudeginum brunuðum við af stað og ákváðum að skoða alla þéttbýlisstaðina þarna fyrir austan. Fórum á Reyðarfjörð, Eskifjörð, Neskaupsstað, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð, Breiðdalsvík, Djúpavog og enduðum á Höfn. Fórum í sund á Djúpavogi og þar er rosalega flott sundaðstaða, reyndar inni en alveg sama. Gistum svo í Árnanesi rétt hjá Höfn.

Á mánudeginum fórum við svo áfram af stað, skoðuðum Jökulsárlón, fórum í Skaftafell, Kirkjubæjarklaustur, Vík, Hvolsvöll, Hellu, Selfoss og í borgina. Smelltum okkur aðeins í búðir í Smáranum og fórum svo heim um kvöldið. Þá höfðum við ekið 1835 km. en hringvegurinn er víst ekki nema rúmlega 1300, þannig að við fórum nokkra útúrdúra. Þetta var rosalega skemmtilegt og margt að skoða. Þetta var í fyrsta skipti hjá okkur öllum sem hringurinn er farinn og ekki seinna vænna fyrir þennan sem er að komast á fimmtugsaldurinn að vera búninn að fara hringinn áður !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Svo er bara að fara að plana afmælið. Hann Doddi elskan verður víst 40 ára á fimmtudaginn og ætlum við að hafa smágrill og gill á föstudagskvöldið. Svo er bara að slaka á um helgina og skella sér svo í 30 ára afmælið hennar Guðrúnar á sunnudagskvöldið og svo ball í Árgarði á eftir............

Aldrei að vita nema maður skelli sér svo eitthvað í næstu viku.

Ferðabakterían..............................

Engin ummæli: