23 júlí 2006

Heyskapur

Jæja, þá er blessaður heyskapurinn að mestu afstaðinn. Þetta tekur nú ekki langan tíma núna á tækniöld, ó nei nei. Við byrjuðum aðeins að slá á þriðjudagskvöldið, svona til að prufukeyra græjurnar eftir veturinn. Svo eftir kaffi á miðvikudag var farið að slá, á fimmtudaginn var líka slegið. Svo var rúllað föstudag og laugardag, og viti menn, allt komið í plast. Við erum svo núna að strembast við að koma gömlu New Holland bindivélinni í lag til að binda í smábagga fyrir hesthúsið. Þetta er nú ljómandi fínt og veðrið, ekki er nú hægt að kvarta yfir því þessa dagana. Í gær var um 20°C og álíka í dag, fínn norðanandvari og brakandi þurrkur eins og bændur segja.

Svo nú get ég farið að plana sumarfrí enn meira......................................

Jibbí..............

Engin ummæli: