11 júlí 2006

Íslenska sumarið í hnotskurn, eða hvað???

Jæja, bloggletin að drepa mann þessa dagana. Hef ekki verið í stuði til að skrifa hér neitt af viti eða óviti og því best að sleppa því þá alveg. Sumrin eru til að slaka á og hafa það huggó en samt ferðast og slæpast og ég veit ekki hvað. Svo tilheyrir að veðrið sé að stríða manni, lítið um sól og mikið um rigningu. Þýðir ekki að fást um það, heldur bara klæða sig eftir veðri og fá sér heitt kakó á kvöldin. Ekki hægt að segja annað en að íslenska sumarið sé alveg að gera sig þessa dagana, eða þannig.................

Síðan síðast hefur margt miður gáfulegt og annað skemmtilegt gerst hér hjá okkur í sveitinni. Ég fór með Strönd á LM og tók tvær vaktir fyrir þá, aðfaranótt laugardags og morgunvakt á sunnudegi. Var bæði skiptin í miðasölu Saurbæ og get ekki annað sagt en það hafi verið í heildina rólegt........... Alltaf gaman að hitta fólk og spjalla.

Svo skelltum við okkur á Akureyri um daginn og ákváðum að leika túrista og gistum á Draflastöðum í Fnjóskadal, hjá ferðaþjónustubændum þar. Ekki amalegt að vera þar skal ég segja ykkur, heitur pottur og alles. Ljómandi fínt.

Svo um síðustu helgi smelltum við okkur til RVK. Boðið í skírn hjá Örnu og Smára. Fórum því þangað á laugardeginum og drengurinn var skírður Hólmar Hagalín, til hamingju með það dúllan mín. Hann svaf þessa athöfn alla af sér og var sér og sínum til sóma þarna. Æðisleg íbúðin hjá þeim þarna í Hafnarfirðinum, til hamingju með hana.

Svo í fyrramálið ætlum við að smella okkur á Flúðir í bústað í tvær nætur eða svo. Það er nefnilega þannig að ekki erum við byrjuð að heyja, sprettur eitthvað seint þetta árið og þá er um að gera að nota tímann í afslöppun og hlaða batteríin fyrir komandi vetur. Held reyndar að við byrjum um næstu helgi, ef ekki er rigningarspá. Erum reyndar að pæla í að slá allt í einu ef það er þurrkur og fá svo Svenna bró til að koma og rúlla allt í einu og þá er þetta næstum búið, bara eftir að heyja í minibaggana fyrir Sigrúnu.

Rosalega öfunda ég frændfólkið sem er að skella sér til Köben í viku núna í kvöld. Hefði alveg verið til að fara með þeim, slæpast í Köben og fara í Tívolíið, en maður verður bara að láta sig halda áfram að dreyma um útlandaferðir í bili, held ég sé búin með ársskammtinn.

Vigga mín, til hamingju með nýja djobbið, nú verður gaman að koma í Samkaup og ég hef tröllatrú á að þú bætir viðhorf Skagstrendinga varðandi þessa blessuðu búð.......

Jæja, kommentið nú þið sem eruð að lesa bullið og blaðrið, gaman að sjá hverjir eru að kíkja.

Sumarkveðjur úr sveitinni.....................

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

TAkk fyrir Dagný! Ég mun gera mitt besta þarna í búðinni :) Ég á nú alveg örugglega eftir að koma með einhvað gúmmilaði til ykkar yfir götuna :)
Sjáumst í Samkaup :) :)
Kv. Vigga