27 júní 2006

Bloggið á afmæli :-)

Hæ allir.
Komst að því áðan að það var eitt ár síðan ég byrjaði að blogga hérna, nákvæmlega 23. júní. Rosalega er ég nú búin að standa mig vel í þessu.

Ættarmót helgarinnar gekk eins og í sögu. Skelltum okkur af stað eftir hádegi á föstudaginn, brunuðum í Bónus í Borgarnesi og svo upp í Varmaland. Tjölduðum þar og vorum með þeim fyrstu. Svo fór fólk að tínast á svæðið og svaka stuð um kvöldið. Minn skemmilegi bróðir hélt langar og drepleiðinlegar lofræður um Guðna Ágústsson, hef ekki hugmynd af hverju, líklega ætlar hann að ganga í Framsókn. Svo var farið í sund, í ratleiki, kubb, fótbolta og ýmsa leiki á laugardeginum. Um kvöldið var síðan matur í íþróttahúsinu, nokkuð gott. Var sett í næstu ættarmótsnefnd fyrir árið 2011.

Sáum á heimleiðinni að margir eru farnir að heyja. Skoðuðum okkur nefnilega um í Borgarfirði, keyrðum upp í Skorradal og fleira. Fórum svo Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Margir farnir að heyja í Dölunum. Við erum ekki að fara að heyja strax, svo það sé á hreinu, grasið þarf víst að fá að spretta eitthvað áður en það er slegið.

Rannveig Erla kom í heimsókn í gær og gisti, þvílíkt stuð hjá þeim. Fórum svo í morgun og náðum í Hörpu Hlín og nú eru þær þrjár að skottast hérna inni og úti. Berglind og Magnús eru í hestaferð og leyfðu stelpunum að vera hér og á Ströndinni á meðan. Gaman að fá þau í heimsókn.

Er að fara að vinna á LM á föstudagsmorgun. Bauðst til að taka vakt fyrir björgunarsveitina. Þarf reyndar að vakna kl. 5.30 en hvað um það................ verð rosalega fersk þann daginn...........

Over and out

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ pæ!
Til hamingju með bloggafmælið :)
Sjáumst í búðinni.
Kv. Vigga