11 júní 2006

Home sweet home

Jæja, þá erum við komin heim úr þessari bráðskemmtilegu ferð til Boston. Þetta gekk allt ljómandi vel hjá okkur, skemmtilegar skólaheimsóknir, margar búðir og margt að skoða. Við vorum eitthvað að stressa okkur í gærkveldi á flugvellinum, héldum auðvitað að við værum öll með yfirvigt.En nei, nei, þetta var ekkert mál og ég var bara með 35 kg. Keypti helling af fötum á okkur öll, skólaföt á Ellu gellu og fleira. Við vorum í næturflugi heim og vorum lent um 6.30 í morgun. Þá var mismikið búið að sofa, ég held að ég hafi náð góðum klukkutíma í vélinni. Svo beið okkar rúta frá Halli, þannig að reynt var að sofa í rútunni, tókst reyndar ekki svo vel, held ég hafi sofið frá Borgarnesi í Staðarskála. Ég var því frekar þreytt í dag og lagði mig eftir hádegið. Svo tekur vinnan við á morgun og jafnvel fram á miðvikudag, þá ætla ég að hætta og fara í sumarfrí............... vú það verður ljúft.

Frekar bissý dagar á næstunni, fundur, vinna, klipping, brúðkaup, baka, ættarmót og ég veit ekki hvað.

Allir Bostonfarar: TAKK KÆRLEGA FYRIR FRÁBÆRA FERÐ !!!!!!!!!!!

Bæjó

Engin ummæli: