Mikið er gott að þessar blessuðu kosningar eru afstaðnar. Það hefur varla verið hægt að horfa á sjónvarp, lesa blöðin eða hlusta á útvarp fyrir frambjóðendum víða um land. Allir að dásama sig og fyrir hvað þeir standa. Svo núna í dag hefur ekkert annað verið í fréttum en hugsanlegir meirihlutar. Gott verður þegar þessi gósentíð er afstaðin hjá fréttamönnunum.
Það var nú líka kosið hjá okkur í Skagabyggð. Við erum reyndar svo sniðug, það eru engir listar og því allir í framboði. Hljómar rosalega skemmtilegt en ef maður er kjörinn, er það skylda að taka sæti í sveitarstjórn. Skagabyggðarsveitarstjórnin var þannig að engin kona sat þar. Mér fannst það alveg ótækt og ég setti auglýsingu í Gluggann, þar sem ég kvatti íbúa til að kjósa konur á kjördag. Og viti menn, ég komst í sveitarstjórn og varð næstefst, með honum Balda á Tjörn. Rafn, Maggi Vind og Valli í Víkum voru einnig kjörnir í sveitarstjórnina. Svo eru þrjár konur í varamannasætunum, þannig að ég held að þessi auglýsing mín hafi nú bara borið nokkuð góðan árangur :-) Ég er þarna langyngst í sveitarstjórninnin og meðalaldurinn okkar er rúm 48 ár................... Svo nú er bara að fara og finna sér einhver mál til að berjast fyrir í sveitarstjórn, eins og til dæmis ruslahreinsun á bæjum, koma upp trjám við Skagabúð,gefa út fréttabréf, setja upp heimasíðu og svo mætti lengi telja, ég get örugglega fundið mér eitthvað.
Ég var í kjörstjórn og við sátum sveitt við að telja í rúma tvo tíma. Þegar að talningu kemur er þetta kosningafyrirkomulag ekkert svo rosalega sniðugt, þetta er geðveik vinna, en hafðist samt.
Svo eru bara 6 dagar í Bostonferð og ég hlakka alveg rosalega til................. Nú er bara að fara og kaupa sér nokkra dollara til að hafa sem vasapening á leiðinni út, pakka nokkrum flíkum (sumarlegum) ofan í tösku, finna vegabréfið og flugseðilinn og þá er ég tilbúin. Það er víst ágætt veður í Boston þessa dagana, yfir 20 stiga hiti og fínheit. Ég á örugglega eftir að tapa mér í búðum þarna, best að taka róandi með.
Svo á morgun er ég að fá bekkinn minn í sveitaheimsókn. Þau koma um 8 í fyrramálið og fara í fjárhúsin og út að leika. Þetta er síðasti skóladagurinn fyrir próf og um að gera að slaka á. Svo eru útivistardagar og skólaslit á föstudag, ég hlakka sko til.
Jæja, best að fara að glápa á 24, spennan er óbærileg þar.
28 maí 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Hæ hæ Dagný!
Til hamingju með kosninguna :) Já, það er rétt hjá þér að það er gott að þessi kosningatörn sé yfirstaðin.
Sjáumst á morgun
ps. það verður svo gaman hjá okkur í Boston :) :)
Kv. Vigga
hahahahaha sveitastjórn, já, maður spyr sig... en vona að þú náir að stjórna þessum miðaldra mönnum þarna með harðri hendi..... og gæti jafnvel látið þá skiptast á að koma með heimabakað á fundi...
Kveðja HG.
HG
Heimabakað á fundi verður fyrsta málið frá mér !!!!!
Til hamingju með kosningarnar og ég trúi ekki öðru en að þú rúllir þessu upp eins og öllu sem þú tekur þér fyrir hendur. Sjáumst á morgun ;-)
Jæja á ekki að standa við málefni bleika listans góða sem bauð fram fyrir mörgum mörgum árum á króknum? Styttu af Geira og bjórverksmiðju??? Hahaha, en til hamingju skvísa og skemmtu þér obbolega vel í USA...
Skrifa ummæli