20 maí 2006

Hard Rock Hallelujah

Eurovision búið og auðvitað sigruðu sætu Finnarnir, en ekki hvað. Ég var að vona að þeir ynnu en hélt einnig með henni Carolu og svo sæta Rússanum. Lordi er fyndin hljómsveit og skondið að hugsa til þess að almenningur veit ekki hvernig þeir líta út í alvörunni. Hvernig skyldu þeir vera ????
Þetta var hörku skemmtun og gaman að fylgjast með stigagjöfinni, þrususpennandi. Við ættum kannski að fara að senda Mínus eða eitthvað álíka í þessa keppni, allt er hægt, ja eða Baggalút með köntrýlag. Fann svo þessa ljómandi skemmtilegu síðu tengda þessari keppni en hún er Útvarp Evrovision. Þar er hægt að hlusta á ný og gömul lög allan sólarhringinn, fyrir forfallna áhangendur. Svo er góður vefur hjá Rúv um keppendur og ég fann þessar ljómandi fínu myndir þar.

Nóg um sönginn. Þá er það veðrið. Ég er að verða vitlaus á þessum hringlandahætti í veðrinu. Nú er allt hvítt og það er 20.maí. Hvað á þetta að þýða. Þetta á víst að verða svona út næstu viku !!! OJOJOJOJ. Ég vorkenni svo litlu lömbunum okkar í þessum kulda, þetta er ekki þægilegt fyrir þau.

Svo eru að koma kosningar eins og allir vita. Ég er búin að fá nóg af öllum auglýsingunum, þáttunum og fréttunum af þessu öllu. Gott þegar þetta verður afstaðið og vonandi verð ég ekki kosin í hreppsnefnd í Skagabyggð, nenni þessu ómögulega.

Stutt vika framundan og margt skemmtilegt að gerast í vinnunni og annars staðar. Nánar um það seinna. Svo eru bara 14 dagar í Bostonferðina, hlakka geðveikt til.

Að lokum, Mæja mín, til hamingju með afmælið í dag og árin 30.

Heyrumst......................

Engin ummæli: