Jæja, vorblíðan ljúfa mætt á svæðið. Sauðburður gengur þokkalega vel hjá okkur. Ég er búin að fá eina þrílembda, rosaflottar 2 svartar gimbrar og 1 svarflekkótt. Dodda finnst þetta nú flott þótt hann þori varla að viðurkenna það. Svo er komið fullt af hvítum lömbum. Við Elín bíðum spenntar á hverjum degi, hvort fleiri mislit komi.
Annars gengur lífið sinn vanagang hérna á Ströndinni. Elín spilaði á vortónleikum í Hólaneskirkju á sunnudaginn og stóð sig rosalega vel. Svo fórum við í foreldraviðtal í dag og þá fékk hún rosalega fína umsögn hjá kennaranum :-)
Svo bíður maður bara og vonar að dollarinn lækki áður en við skellum okkur til Boston. Ég er farin að hlakka til en samt lítið farin að hugsa um þetta. Það verður ljúft að versla í Boston........
Jæja, fleira hefur ekki drifið á daga okkar, enda myndi ég þá ekki eftir því, minnið er eitthvað að klikka þessa dagana.
09 maí 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Damm da ramm damm....... dollarinn er komin í 70,22 ég ætla bara að bíða þangað til við erum alveg að fara út því hann lækkar bara og lækkar þessa dagana, blessaður.
Skrifa ummæli