Um síðustu helgi var hann Tómas Ingi litli brói að fermast og var alveg rosalega flottur, eins og alltaf. Ég var að hjálpa mömmu á föstudeginum að skreyta salinn, setja á kökur og fleira. Kransakökuna höfðum við mamma saman og ég bjó til þessa rosalegu marsípantertu. Veislan tókst rosalega vel og ég held að drengurinn geti ekki annað en verið ánægður með daginn. Til lukku !!!!!!Svo er önnur ferming í ættinni næsta laugardag en þá fermist hann Valur Borgar. Það verður örugglega fín veisla þar líka.
Mikið er búið að gerast síðustu dagana hjá okkur. Í gærkveldi skelltum við mægðurnar okkur á garg.is, en það er söngvarakeppni Höfðaskóla. Það var rosalega gaman og æðislegt að sjá þarna yfir 20 krakka stíga á stokk. Ég átti nú nærri helminginn af þeim og ég er rosalega stolt af krökkunum mínum. Þið eruð æðisleg.
SVO BYRJAÐI SAUÐBURÐUR Á ÞRIÐJUDAGINN VAR OG FÆDDUST NOKKUR LÖMB ÞANN DAGINN. Er reyndar ekki búin að fara að kíkja á þau, geri það um helgina.
Á morgun er síðan yngra stigið að skella sér í vorferð. Fara á fyrir Skagann, skella sér í fjárhús, loðdýrahús og fleira. Það verður örugglega skemmtilegt.
Svo er saumaklúbbur á laugardaginn, gaman að hitta kvinnurnar yfir kökum og kaffi !!!!!!!
Að lokum: Til hamingju með nafnið Anna Karlotta Sævarsdóttir, ungfrú á Sölvabakka.
Heyrumst
1 ummæli:
Hæ ofurkona :)
Glæsilegt veisluborð hjá ykkur. Ég veit við hvern ég tala eftir 9 ár....sjáumst.
Kv. Vigga
Skrifa ummæli