07 apríl 2006

Ekki á morgun, heldur hinn..................

Loksins komin í langþráð og löngu planað páskafrí. Förum suður á morgun og flug út til Köben á sunnudagsmorgunn. Ég hlakka svo til..................... En held að Elín hlakki meira til.

Veðrið er búið að vera að stríða okkur þessa dagana. Ég var næstum búin að fá bíl inn í hliðina á nýja súbbann minn á miðvikudaginn. En sökum snarræðis hjá mér slapp ég og hinn bíllinn líka, sem betur fer. Svo í morgun var ég alveg viss um að ekki myndi ganga vel á leið í vinnuna og ég hafði nú rétt fyrir mér. Það er alveg dæmalaust með þá sem sjá um snjómoksturinn á Skagaströnd, það er eins og þeir sofi á sínu græna þegar veðrið er slæmt. Það var lítið sem ekkert búið að moka í morgun og með herkjum hafði ég mig að leikskólanum og það var ekki þeim að þakka. Kom svo 7 mínútum of seint í vinnuna fyrir vikið.
Spurning um að hringja í þessa menn á morgnana og biðja þá að kíkja út fyrir kl. 7:30, svo fólk sem ekki á tröllvaxna jeppa, komist leiðar sinnar til og frá vinnu og skóla. Ég er sko búin að fá nóg af þessu og gott að hugsa til þess að næstu 10 dagana eða svo þurfi ég ekki að hugsa um snjó.

Jæja, best að fara að pakka niður og taka til allt sem á að fara með til Dk - meðal annars páskaeggin handa öllum.

Over and out.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hlakka til að hitta páskaeggin, æj meina ykkur mæðgur, hehehe
heiða og grísirnir

Nafnlaus sagði...

Góða ferð Dagný mín og vonandi skemmtið þið mæðgurnar ykkur vel þarna í útlandinu