13 apríl 2006

Danaveldi

Jæja gott fólk. Þá er maður staddur í Danaveldi og við höfum það nokkuð gott hérna.
Erum búnar að þramma um Köben og skoða Hafmeyjuna og Höllina. Smelltum okkur svo til Odense að hitta Heiðu og börnin. Við höfum nú ekki alveg gert allt sem við ætluðum vegna slappleika hjá öllum börnunum, en þetta er allt að koma.
Fórum í dýragarðinn í dag og þar var sko stuð hjá öllum.
Ætlum svo að reyna að fara í Legoland næstu daga, fer eftir veðri og heilsufari.


Annars allt í goodý og smelli hér inn mynd til gamans,kannski koma fleiri.

Engin ummæli: