15 apríl 2006

Laugardagskvöld...............

Hef það huggulegt í kvöld maður...................... er að passa fyrir Heiðu systir, hún skrapp á eitthvert skrall. Hún var varla farin út þegar prinsinn vaknaði og vakti í rúman hálftíma, svakastuð á honum. Svo fóru dömurnar að sofa og voru sofnaðar um kl. 21. Þá glápti ég á imbann og smellti mér svo í tölvuna.
Í gær fórum við í Legoland með nesti og nýja skó. Það var þvílík mannmergð þarna, ég skal segja þér það. En við skemmtum okkur konunglega þarna og allir voru orðnir uppgefnir eftir 7 tíma í Legolandi. Tók helling af myndum þarna og smelli einhverju vonandi inn næstu dagana.
Í dag var svo farið í búðarráp án barna. Fengum íslenska stelpu til að passa fyrir okkur og þvílíkur lúxus að fara barnlaus í búðir. Vorum alveg í 4 tíma að tapa okkur í Rosengard. Elduðum svo þessa fínu pitsu í kvöldmatinn.
Á morgun er páskadagur og ég samdi við Elínu og Karías um að fela eggin þeirra og þær eiga að leita. Þetta verður eitthvað skrautlegt maður. Svo á að slappa af á morgun, borða grísinn og eggin. Svo á mánudag verður eitthvað sniðugt gert, kannski rölt í bæinn á þriðjudag og svo flug heim á miðvikudag.
Þetta er sko þrusupáskafrí.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilega páska og góða ferð heim.
Ummm 4 tímar barnlaus í búðum hljómar mjööög vel :)
Sjáumst.

Nafnlaus sagði...

Einu sinni voru tveir tómatar á skipi. Allt í einu datt annar útbyrðis og þá gargaði hinn, FLJÓTUR SKERÐU ÞIG Í BÁTA

He, he

Góða ferð heim