Jæja, þá kom að því að það færi að snjóa á ísaköldu landi. Það er bókstaflega allt að fenna í kaf hérna. Rólurnar fínu eru horfnar og skaflinn er orðinn svo svakalegur að hann nær orðið niður að vegi. Vonandi fer þetta bull að hætta, þetta er svo þreytandi: snjógalli, þrífa bílinn, hálka, sitja fastur. Nenni ekki lengur þessu bulli.
Nú eru bara 11 dagar í Danmerkurferðina. Við erum að verða spenntar, hlökkum mikið til að hitta Baunana okkar, slappa af, fara í Legoland, dýragarð og fleira.
Skemmtileg frétt í lokin: Anna Margrét og Sævar eignuðust fallega og stóra stúlku rétt eftir miðnætti í dag. Nánar á Sölvabakkavefnum.
Best að fara að horfa á Opruh.
Bleble
29 mars 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ hæ!
Gaman að rekast á síðuna þína :)
Já, þú ert alltaf velkomin í íþróttahúsið.
Sjáumst.
Kv. Vigga
já þessir 11 dagar, eða sennilega orðnir 10 núna eru ekki lengi að líða, við hlökkum svooooooooo til að sjá ykkur og páskaeggin líka....
Kossar, súpergellan Heiða og baunagrísirnir....
Skrifa ummæli