Jæja, ég er farin að viðurkenna það að ég er að snúast í alltof mörgu í einu. Þegar þannig er ástatt fyrir manni fer maður að vera kærulaus, gleyma sjálfsögðum hlutum og muna ekki hvað átti að gera næst. Ég er iðulega að lenda í þessu, óþolandi. Ég man eitthvað sem ég þarf að gera, geri eitthvað annað bráðnauðsynlegt í millitíðinni og þá er ég búin að gleyma hinu sem ég ætlaði að gera. Við vorum að ræða þetta í vinnunni og við höldum að þetta sé einhver kennarasjúkdómur, við erum öll meira og minna svona, þurfum að ganga með minnismiða á okkur og handleggir og hendur útkrotuð í minnisatriðum. Þetta er ekki nógu sniðugt. Ég hef reyndar alltaf sagt að kennarastarfið er álagsstarf, en omg, þetta er að verða of mikið.
Svo er maður í alls konar annarri vinnu.
T.d. er ég með kirkjuskólann á Skagaströnd á mánudögum, ásamt Einari og Elíasi. Ég hef reyndar ekki gleymt honum ennþá og bara þrjú skipti eftir, þannig að ég vonast til að muna eftir þeim.
Svo er ég í kvenfélagi, í stjórn, og við erum alltaf að bralla eitthvað. T.d. er bingó á sunnudaginn 12.mars og það þarf að safna vinningum og skipuleggja. Ég er búin að vera nokkuð dugleg í því.
Svo er ég í starfsmannafélagi, formaður, og þar er ég alltaf að reyna að upphugsa eitthvað sniðugt fyrir okkur félagsmenn, gerist reyndar ekki mikið en samt...............
Svo er ég í saumaklúbb. Við hittumst reyndar á þriggja vikna fresti, og ég komst ekki síðast, og það þarf að taka frá tímann fyrir hann. Bráðskemmtilegur tími og nauðsynlegt að hitta allar kvinnurnar í sveitinni.
Síðast en ekki síst rek ég fyrirtæki: þ.e. sveitaheimili og það er sko nóg að gera á þeim bænum.
Þannig að Wonderwoman má fara að vara sig.................................... ekki það að ég er að fá upp í kok af þessu öllu og þarf að fara að hægja á áður en ég lendi í Hveragerði (það segir Doddi).
Annars er barasta rólegt í sveitinni, sumarblíða og ég komin á annan bíl. Doddi smellti sér á Subaru Legacy 2003 og seldi MMC pikkann. Fínn bíll og nú fær hann að keyra á Kiuklíunni.......
Jæja, ofurkonan þarf að fara að gefa barninu að borða
Síjú
10 mars 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
ok hverju sem að þú gleymir, ekki gleyma að gefa barninu að borða:) Til hamingju með nýja bílinn....
Þú ert svo dugleg.... en ég á nú bágt með að trúa að þú sért að gleyma einhverju bráðnauðsynlegu... miðað við skipulagsgáfuna sem þú ert fræg fyrir :-)
En bara svona til að vera viss um að þú vitir það, af því að þú varst nú ekki síðast, þá er saumó hjá mér á föstudagskvöldið næsta... smá breyting, það verður sem sagt Idol þema í þetta skiptið.
Bestu kveðjur
Anna Magga
Ok, Anna ég vissi af þessu með saumó, hitti Angelu. Takk takk
Skrifa ummæli