28 febrúar 2006

Saltkjöt og baunir - túkall !!

Nú er bloggað af miklum móð og langt síðan bloggað hefur verið með svona stuttu millibili. Gefur kannski til kynna að bloggarinn hafi meiri tíma???

Jæja, upp er runninn hinn skemmtilegi sprengidagur. Ég eldaði að sjálfsögðu saltkjöt og baunir í hádeginu og við átum á okkur gat. Gott að eiga afgang í kvöldmatinn. Það heyrir nefnilega til tíðinda á þessum bæ að eldað sé í hádeginu á virkum dögum, enda húsfrúin alltaf í vinnunni. En núna er gott að vera í vetrarfríi og stjana við fjölskylduna.

Í gær brugðum við mæðgur okkur á Akureyri í búðarráp og versluðum mikið, sérstaklega í Bónus. Ég skil reyndar ekki af hverju Norðurland vestra er eini landshlutinn þar sem Bónus er ekki, er alveg sannfærð um að þetta tengist eitthvað KS veldinu. Það munar alveg heilmikið um að kaupa í matinn í Bónus, miðað við Samkaup og KS. En hvað um það, maður skreppur þá bara oftar til Akureyrar enda fínt að fara þangað.

Á morgun er síðan öskudagur og Elín fer í leikskólann þá, sem Lína Langsokkur og með Herra Níels með sér. Þetta er búið að vera mikið mál fyrir hana, hún vildi vera Solla stirða, svo einhverjar Disneygellur en endaði á Línu. Ég er mjög sátt, enda Lína frábær karakter.
Svo er vinna framundan fimmtudag og föstudag, stutt vinnuvika......................

Þið megið alveg skrá inn einhver comment, það er gaman að vita að einhver er að lesa þetta bull, bæbæ

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er að lesa þetta bull:) Gaman að heyra frá ykkur. Ég get nú barasta ekki annað en öfundað þig af vetrarfríinu þínu, hér eru allir nema háskólanemar í sportlov. Maður ætti kannski að hætta við þessi blessuðu verkfræðiplön og skella sér bara í kennarann, eru þið ekki alltaf í fríi? (nú veit ég að þú ert að bölva mér hehe) Annars bið ég að heilsa Línunni þinni og bóndanum þínum.

kv úr Línulandi
Rósa

Nafnlaus sagði...

ég les þetta alltaf hjá þér!!!

kveðja Áróra