16 febrúar 2006

Óveður

Jæja, þá kom að því. Það kom óveður.
Í dag erum við búin að hanga heima því það er ekki ferðaveður til Skagastrandar og okkur datt ekki í hug að leggja af stað. Doddi var nú eitthvað að draga úr þessu en ég nenni ekki einhverju veseni, svo best er að hanga heima á svona degi. Á reyndar ekki von á að margir krakkar hafi mætt í skólann í morgun.
Annars er bara allt í þokkalegu lagi hérna í sveitinni. Er farin að hlakka til Danmerkurferðar í apríl, það verður gaman. M&P eru núna í Danmörku í vikufríi og vonandi hafa þau það sem best.

Ella gella er á sundnámskeiði á laugardögum á Sauðárkróki. Þetta er rosalega fínt námskeið og hún hefur sko gott af því að læra að synda og fara í kaf. Erum búnar að fara 2x og eru 6 skipti eftir. Svo er fínn heitipottur hjá sundlauginni og ekki amalegt að slappa af þar.

Fleira er ekki að gerast hér þessa stundina.....

Engin ummæli: