Jæja, þá er mín bara komin í vetrarfrí. Eftir langa, stranga törn í vinnunni í síðustu viku þá er nú gott að fara í frí. Við vorum með árshátíð á föstudaginn var og hún heppnaðist rosalega vel. Bekkurinn minn stóð sig með prýði og sýndi Latabæjarleikrit sem þau sömdu sjálf. Það var rosaflott hjá þeim. Reyndar stóðu allir sig mjög vel og við kennararnir erum greinilega vinsælir: tískusýning og allt í drasli!!!!
Svo er maður núna í þriggja daga fríi og þarf ekki að mæta fyrr en á fimmtudaginn. Er að hugsa um að smella mér á Akureyri á morgun eða þriðjudaginn...............
Annars er verið að baka bollur, búin að baka bæði vatnsdeisbollur og gerbollur og í dag á að taka forskot á sæluna, ekki víst að maður verði heima á morgun.
Fékk reyndar bollur í gær hjá mömmu.........................
Síjú
26 febrúar 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli