Sólin skín og það virðist loksins vera komið sumar, þrátt fyrir að það hafi snjóað í gærkveldi !!!!!
Hamast í vinnunni þessa dagana, ætla að klára á morgun og fara þá í langþráð sumarfrí, jibbí jei..........
Ella sprella er í útskriftarferð með skólahópnum, gista í skíðaskálanum í nótt og svo á morgun er hennar síðasti leikskóladagur, ég held að alla hlakki til á heimilinu !!!!! kannski hún mest, því spenningur fyrir skólanum er gríðarlegur, hún farin að lesa mikið og rosalega dugleg, eins og hún hefur upplag til.
Annars hangi ég bara í tölvunni núna, nenni ekki að fara að ryksuga eins og ég þyrfti að gera. Held að Svenni bró sé að koma í heimsókn í kvöld, þegar hann er laus við konuna og krakkann. Þau eru víst að skella sér til Baunanna í Baunalandi og verða þar í viku. Góða skemmtun þar !!!! Ætti kannski að fá þau til að innheimta skuldina mína??? Sara er nú ansi efnilegur handrukkari !!!!!!!
Þyrfti einnig að fara að baka fyrir kaffið hjá kvenfélaginu um helgina, er nú varla að nenna því í dag, en samt.............. hef ekki tíma seinna í vikunni, bissý vika þessi. Hlakka geðveikt til að fara á leikritið hennar Eddu Björgvins á Blönduósi á fimmtudaginn. Sprella gella verður þá hjá ömmu og afa í pössun, þau mega nú ekki alveg fá fráhvarfseinkenni af barnabörnunum :-) nei segi nú bara si svona.............
Jæja, verð víst að fara að gera eitthvað á þessu heimili..................
13 júní 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli