22 júní 2006

Jamm

Jæja, komin enn ein helgin þetta árið og ekki amaleg þessi. Erum að fara á ættarmót að Varmalandi í Borgarfirði, eins gott að það rigni ekki þessa helgina. Annars er það skrítið með þessi ættarmót, fólk hittist á X ára fresti til að djamma eina helgi og svo talast það varla við fram að því næsta, skrítið fólk þetta. Er reyndar oft að hitta þessa ættingja og ættarmótið er reyndar ekkert frábrugðið þessum skemmtilegu ættarhittingi hjá Höllu og co.

Við vorum rosalega dugleg í dag, smöluðum túnið og keyrðum tvær ferðir upp á fjall með féð, geri aðrir betur!!!! Er guðslifandi fegin að helmingurinn sé farinn á fjall, þrátt fyrir litla sprettu þarna uppfrá. En urðum að losa túnið svo hægt verði að heyja eitthvað í sumar.

Nokkrar gleðifréttir í lokin:

Arna og Smári eignuðust stóran og stæðilegan dreng í gærmorgun. Innilega til hamingju Arna og Smári, hlakka til að hitta ykkur.

Anna Margret samstarfskona mín komst inn í Kennó í fyrstu tilraun, ekkert smá flott hjá henni. Innilega til hamingju og til hamingju með afmælið í dag Anna mín.

Bjössi og Maja giftu sig síðasta laugardag og héldu þrusubrúðkaup. Enn og aftur innilega til hamingju.

Best að fara að horfa á Desperate Housewifes............ bara snillar þar á ferð

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir það Dagný mín, ég er sko 100% viss að bréfin frá þér og Hildi höfðu mikið að segja :*